Körfan mín

Loka

BÓLUÞANG

 

Bóluþangslínan

Fríða ólst upp við sjóinn og hefur alla tíð borið djúpa virðingu fyrir lífríki fjörunnar. Sérstaklega heillaðist hún af bóluþanginu, hvernig litlu blöðrurnar fyllast af lofti og þangið vaggar til og frá með straumnum.

Í Bóluþangslínunni verða þessar loftbólur að fáguðum þyrpingum af silfur- og gullkúlum. Inn á milli kúlnanna leynast stundum litlir demantar eða steinar, eins og daggardropar eða sjávarfroða sem glitrar í sólinni.

Fyrir Fríðu táknar bóluþangið kyrrðina og friðsældina sem finna má í ósnortinni íslenskri náttúru. Þá tilfinningu vill hún að þú berir með þér, hvert sem þú ferð.

Bóluþangslinan er mest megnis úr silfri, en þó eru nokkrir gripir til í gulli líka.




Fínpússa

Fínpússa