STÆRÐIR
Hringar
Allir hringirnir okkar eru skráðir í stærðum 48–62. Það er mælieining sem notar innra ummál hringsins í mm. Ef landið þitt notar annan mælikvarða, vinsamlegast notaðu www.ringsizes.co til að sjá hver stærðin þín er í mm. Einnig er að finna fjöldann allan af öðrum hjálpargögnum með Google-leit. Vinsamlegast notaðu „Hafðu samband“-síðuna okkar eða sendu okkur línu á fridaskart@fridaskart.is ef þú sérð ekki þína stærð í listanum; við getum smíðað hringina okkar í hvaða stærð sem er.
Armbönd
Lengdir á armböndunum okkar eru allar skráðar í vörulýsingu hvers armbandis í cm. Til að sjá hvort lengdin á armböndunum okkar henti þér geturðu mælt úlnliðinn með mjúku málabandi eða bandi. Ekki mæla of fast, þar sem þú vilt ekki að armbandið sé of þröngt.
Ef þér finnst lengdirnar á armböndunum okkar vera of stórar/litlar, vinsamlegast notaðu „Hafðu samband“-síðuna okkar eða sendu okkur línu á fridaskart@fridaskart.is með stærðinni á úlnliðnum þínum og við látum þig vita hvort við getum breytt viðkomandi týpu svo hún passi þér.
Hálsmen
Valkostir fyrir lengd á hálsmenakeðjum eru skráðir í aðalvörulýsingu hverrar vöru. Ef þú sérð ekki þá keðjulengd sem þú kýst, vinsamlegast hafðu samband við okkur eða sendu okkur línu á fridaskart@fridaskart.is og við látum þig vita hvort við getum gert breytingar.
Eyrnalokkar
Mál eyrnalokka eru skráð í upplýsingahluta hverrar vöru.