AKANTUS
Akantuslínan
Akantus vörulinan er innblásin frá rúmfjöl sem amma Fríðu átti. Í verslun Fríðu hangir fjölin, og er hún skreytt útskornu akantusmunstri. Þetta mjúka, lífræna skraut hafa íslenskir handverksmenn skorið í tré um aldir, og það prýðir marga af okkar fegurstu forngripum, allt frá rúmfjölum og baðstofuhurðum til handavinnustokka og kirkjumuna.
Í Akantuslínunni færir Fríða þessa handverkshefð yfir í silfur og 14 karata gull. Sveigðar línur, laufblöð og greinar sem vefjast saman gefa málminum lífrænt og glæsilegt yfirbragð.
Útkoman er brú á milli fortíðar og nútíðar: tímalausir skartgripir sem sóma sér jafnt við hversdagsfötin og sparifötin, en bera með sér handbragð kynslóðanna.
Acanthus fæst bæði í silfri og 14 karata gulli.