UM OKKUR
Fríða er lítið fjölskyldufyrirtæki í eigu hjónanna Fríðu J. Jónsdóttur og Auðuns G. Árnasonar. Fríða útskrifaðist sem gullsmiður árið 1992 og hefur starfað við fagið síðan. Þau opnuðu sína eigin verslun í Hafnarfirði árið 2007, en fluttu hana í hjarta miðbæjar Reykjavíkur árið 2015, að Skólavörðustíg 18. Hönnun Fríðu sækir innblástur í íslenska alþýðulist sem og fjöruna. Hún hannar nútímalega skartgripi sem eru þægilegir í notkun. Framleiðsla skartgripanna fer að mestu leyti fram á verkstæði þeirra sem er staðsett í versluninni.
-






