Körfan mín

Loka

Endurgreiðslustefna

Skilareglur — Fríða skart

SKIL OG ENDURGREIÐSLUR

Kaup í netverslun – 14 daga réttur til að falla frá kaupum
Þegar þú kaupir í netverslun okkar átt þú rétt á að falla frá kaupunum innan 14 daga frá þeim degi sem þú tekur við vörunni, án þess að tilgreina ástæðu, sbr. lög nr. 16/2016 um neytendasamninga.

Svona skilar þú vöru
1. Sendu okkur tölvupóst á fridaskart@fridaskart.is innan 14 daga frá móttöku vörunnar. Tilgreindu pöntunarnúmer og þá vöru eða vörur sem þú vilt skila.
2. Sendu vöruna til okkar innan 14 daga frá tilkynningunni, á heimilisfangið:
   FríðaSkart, Skólavörðustíg 18, 101 Reykjavík
3. Einnig er velkomið að skila vörunni í verslun okkar.

Kaupandi ber kostnað af endursendingu. Vinsamlegast pakkaðu vörunni vel. Varan á að vera ónotuð og í upprunalegum umbúðum. Kaupandi ber ábyrgð á rýrnun á verðgildi vöru sem stafar af annarri meðferð en nauðsynleg er til að kanna eiginleika hennar.

Endurgreiðsla
Við endurgreiðum fullt kaupverð, ásamt upphaflegum sendingarkostnaði (að hámarki kostnaði við ódýrasta sendingarmáta okkar), eigi síðar en 14 dögum eftir að þú tilkynnir okkur að þú fallir frá kaupunum. Við áskiljum okkur rétt til að bíða með endurgreiðslu þar til varan hefur borist okkur eða þú hefur sýnt fram á að hún hafi verið send. Endurgreitt er með sama greiðslumáta og notaður var við kaupin.

Undantekningar
Rétturinn til að falla frá kaupum gildir ekki um vörur sem framleiddar eru eftir sérstökum óskum kaupanda, svo sem sérsmíðaða gripi, hringa í stærðum sem við eigum ekki að jafnaði eða vörur sem hafa verið áletraðar að ósk kaupanda.

Kaup í verslun
Hægt er að skipta vörum sem keyptar eru í verslun okkar eða fá inneignarnótu innan 14 daga frá kaupum, gegn framvísun kvittunar eða skiptimiða, að því gefnu að varan sé ónotuð. Vörur keyptar í verslun eru ekki endurgreiddar.

Stærðarbreyting á hringum
Ein stærðarbreyting á hring er innifalin í kaupverði ef óskað er eftir henni innan 30 daga frá kaupum. Sé hringur sendur til okkar í pósti greiðir kaupandi sendingarkostnað.

Gallaðar vörur
Reynist vara gölluð gilda ákvæði laga nr. 48/2003 um neytendakaup. Ábyrgð okkar vegna galla gildir í 2 ár frá afhendingu, eða allt að 5 ár ef varan er ætluð til verulega lengri endingar en almennt gerist. Vinsamlegast hafðu samband sem fyrst ef þú verður var/vör við galla.

Ágreiningur
Náist ekki samkomulag getur kaupandi leitað til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa, www.kvth.is, Borgartúni 29, 105 Reykjavík.

Spurningar? Hafðu samband á fridaskart@fridaskart.is eða í síma 898 8801.