Körfan mín

Loka

SAMEIND

Sameindalínan

Sameindalínan sker sig úr annari hönnun Fríðu, því innblásturinn kemur ekki úr fjörunni eða þjóðlistinni heldur úr efnafræðitíma. Þegar Fríða var yngri sá hún líkan af byggingu silfurs og heillaðist af því hvernig frumeindirnar raðast saman í reglulegt mynstur, ósýnilega byggingu sem býr í málminum sjálfum.

Sem gullsmiður vinnur hún daglega með þessa byggingu. Í hvert sinn sem silfur er hitað, kælt eða mótað undir þrýstingi á verkstæðinu breytist innra skipulag málmsins.

Í Sameindalínunni gerir Fríða hið ósýnilega sýnilegt. Armbönd, hringar og eyrnalokkar úr silfri og 14 karata gulli bera fágað, netlaga mynstur sem minnir á kristalbyggingu málmsins, þar sem vísindi og handverk mætast.

Fínpússa

Fínpússa