Körfan mín

Loka

SENDING OG SKIL

Við leggjum okkur fram um að senda allar pantanir eins fljótt og auðið er. Ef varan er til á lager sendum við pöntunina næsta virka dag. Stundum þurfum við aðeins lengri tíma til að smíða gripina ef þeir eru ekki til á lager, og þá getur afgreiðsla tekið allt að nokkrar vikur. Ef þú þarft að fá pöntunina fyrir ákveðinn dag, sendu okkur línu á fridaskart@fridaskart.is og við sjáum hvað við getum gert!

Innanlandspantanir
Frí sending er á öllum pöntunum innanlands. Pantanir eru sendar með Póstinum og við sendum þér rakningarnúmer í tölvupósti þegar pöntunin er farin af stað.

Pantanir til útlanda
Allar pantanir til útlanda sendum við með DHL, sem býður upp á hraða og áreiðanlega þjónustu. Fast sendingargjald er 6.500 kr. fyrir allar pantanir til útlanda.

Vinsamlegast yfirfarðu heimilisfang og símanúmer vandlega áður en þú gengur frá pöntun. Þú færð tölvupóst frá okkur með rakningarnúmeri frá DHL. Ef DHL á í vandræðum með afhendingu hafa þeir samband í símanúmerið sem þú gafst upp við pöntun. Ef ekki næst í þig verður sendingin endursend til okkar á Íslandi og kostnaður við endursendinguna dreginn frá greiðslunni.

Tollar og gjöld
Við látum upprunalega kvittun og verðmæti pöntunar fylgja tollskýrslu. Kaupandi greiðir öll aðflutningsgjöld og skatta sem tollyfirvöld í viðkomandi landi leggja á.

Skil og endurgreiðsla

Réttur til að falla frá kaupum
Þú hefur rétt til að falla frá kaupum í netverslun okkar án þess að tilgreina ástæðu innan 14 daga, sbr. lög nr. 16/2016 um neytendasamninga. Fresturinn rennur út 14 dögum eftir þann dag sem þú, eða þriðji aðili annar en flutningsaðilinn sem þú hefur tilgreint, færð vöruna í vörslu þína.

Til að nýta réttinn þarftu að tilkynna okkur ákvörðun þína áður en fresturinn rennur út, með skýrri yfirlýsingu, t.d. í tölvupósti á fridaskart@fridaskart.is eða með bréfi á Skólavörðustíg 18, 101 Reykjavík. Þú getur notað staðlaða eyðublaðið okkar, en það er ekki skylt.

Endursending
Sendu vöruna til okkar innan 14 daga frá því að þú tilkynnir okkur að þú fallir frá kaupunum, á FríðaSkart, Skólavörðustíg 18, 101 Reykjavík. Einnig er velkomið að skila henni í verslun okkar. Kaupandi ber beinan kostnað af endursendingu. Þú berð aðeins ábyrgð á rýrnun á verðgildi vörunnar sem stafar af annarri meðferð en nauðsynleg er til að kanna eiginleika hennar og virkni.

Endurgreiðsla
Við endurgreiðum allar greiðslur sem við höfum fengið frá þér, þar með talinn sendingarkostnað (að hámarki kostnað við ódýrasta staðlaða sendingarmáta okkar), eigi síðar en 14 dögum eftir að við fáum tilkynningu þína. Endurgreitt er með sama greiðslumáta og notaður var við kaupin, þér að kostnaðarlausu. Við megum bíða með endurgreiðslu þar til varan hefur borist okkur eða þú hefur sýnt fram á að hún hafi verið send.

Undantekningar
Rétturinn til að falla frá kaupum gildir ekki um vörur sem framleiddar eru eftir sérstökum óskum kaupanda, svo sem sérsmíðaða gripi, hringa í stærðum sem við eigum ekki að jafnaði eða vörur sem hafa verið áletraðar að ósk kaupanda.

Kaup í verslun
Vörum sem keyptar eru í verslun okkar má skipta eða fá inneignarnótu innan 14 daga frá kaupum, gegn framvísun kvittunar eða skiptimiða, að því gefnu að varan sé ónotuð. Vörur keyptar í verslun eru ekki endurgreiddar.

Stærðarbreyting á hringum
Ein stærðarbreyting á hring er innifalin í kaupverði ef óskað er eftir henni innan 30 daga frá kaupum. Sé hringur sendur til okkar í pósti greiðir kaupandi sendingarkostnað.

Gallaðar vörur
Reynist vara gölluð átt þú rétt á úrræðum samkvæmt lögum nr. 48/2003 um neytendakaup. Þú getur, eftir atvikum, krafist þess að við gerum við vöruna eða afhendum þér nýja vöru í hennar stað, krafist afsláttar af verðinu, rift kaupunum eða krafist skaðabóta. Þér er einnig heimilt að halda eftir greiðslu sem nemur kröfu þinni vegna gallans. Viðgerð eða ný afhending er þér að kostnaðarlausu.

Tilkynntu okkur um galla eins fljótt og auðið er eftir að þú verður hans var/vör. Kvörtun sem berst innan tveggja mánaða frá því að gallinn uppgötvaðist telst alltaf hafa borist nógu snemma. Kvörtunarfrestur er 2 ár frá afhendingu vöru, en allt að 5 ár ef varan er ætluð til verulega lengri endingar en almennt gerist.

Ágreiningur
Náist ekki samkomulag getur kaupandi leitað til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa, www.kvth.is, Borgartúni 29, 105 Reykjavík.

Seljandi
FríðaSkart – Kjölfar ehf., kt. 631292-2169, VSK-nr. 103750
Skólavörðustíg 18, 101 Reykjavík · fridaskart@fridaskart.is · 898 8801