Acanthus-línan er innblásin af munstrum í hefðbundnum íslenskum tréskurði. Fríða notaði tréskurðarverk úr sinni fjölskyldu sem innblástur fyrir þessa línu.
Hvert verk er sérsmíðað og því getur afgreiðslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, hefjum við smíði á gripnum þínum og tíminn sem það tekur er breytilegur eftir gripnum sjálfum og fjölda pantana á verkstæðinu hverju sinni. Þú færð tölvupóst þegar pöntunin hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina fyrir ákveðinn tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.
EFNI: 14k gult gull