Bubble Seaweed-línan er innblásin af lögun þörunga. Fríða ólst upp við sjóinn og hefur ætíð borið mikla virðingu fyrir íslenskri náttúru. Hún tengir Bubble Seaweed við þá kyrrð sem einkennir náttúruna og reynir að miðla þessari tilfinningu í skartgripum sínum.
Hver gripur er sérsmíðaður og því getur afgreiðslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, hefjum við smíði á gripnum og tíminn sem það tekur er breytilegur eftir hverju stykki fyrir sig og fjölda pantana á verkstæðinu hverju sinni. Þú færð tilkynningu í tölvupósti þegar pöntunin hefur verið send. Ef þig vantar vöruna fyrir tiltekna dagsetningu, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.
EFNI: 14k gult gull