Bubble Seaweed-línan er innblásin af lögun þangs. Fríða ólst upp við sjóinn og hefur alltaf haft mikla ást og virðingu fyrir náttúrunni á Íslandi. Hún tengir þang við þá kyrrð sem einkennir náttúruna og reynir að miðla þessari tilfinningu í skartgripum sínum.
Hver gripur er sérsmíðaður og getur afgreiðslutími því verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, hefjum við smíði á gripnum og tíminn sem það tekur er breytilegur eftir gripnum sjálfum og fjölda pantana á verkstæðinu hverju sinni. Þú færð tilkynningu í tölvupósti þegar pöntunin hefur verið send. Ef þig vantar pöntunina fyrir ákveðinn tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.
Varðandi oxaða gripi, vinsamlegast hafðu í huga að oxunin mun með tíma og notkun dofna af yfirborði gripsins. Þetta gefur skartgripnum fornlegra útlit með tímanum. Það er alltaf hægt að láta oxa gripinn á ný.
EFNI: 14K gult gull & oxuð silfurkeðja