The Traveler er safn innblásið af gömlum kvennaklakk frá 17. öld. Mynstrið er myndað úr grönnum jurtarteinum sem eru mótaðir í hringlaga form sem skarast og fléttast saman.
Sérhver hlutur er sérsmíðaður og vinnslutími getur því verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, hefjum við smíði á hlutnum og tíminn sem það tekur er breytilegur eftir hlutnum sjálfum og fjölda pantana á verkstæðinu hverju sinni. Þú færð tilkynningu í tölvupósti þegar pöntunin þín hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina afhenta innan ákveðins tímaramma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.
Varðandi oxaða hluti, vinsamlegast hafðu í huga að oxunin dofnar með tímanum og notkun af yfirborði hlutarins. Þetta gefur skartgripunum fornlegra útlit með tímanum. Alltaf er hægt að láta oxa hlutinn aftur.
EFNI: 925 Sterling silfur og brons