Körfan mín

Loka

Prjónaðir eyrnalokkar – Lítil lykkja – Stórir opnir hringir – Silfur

15,500 ISK

Prjónavörulínan er innblásin af því mynstri sem myndast þegar lykkjur eru prjónaðar saman. Prjónaskapur er gríðarlega rótgróinn í íslenskri menningu og vildi Fríða heiðra þetta þjóðaráhugamál.

Hver gripur er sérsmíðað og því getur afgreiðslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef gripurinn er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, hefjum við smíði á skartgripnum þínum og tíminn sem það tekur er breytilegur eftir gripnum sjálfum, og fjölda pantana á verkstæðinu hverju sinni. Þú færð tölvupóst þegar pöntunin hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina afhenta fyrir tiltekinn tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.

Varðandi oxaða skartgripi, vinsamlegast hafðu í huga að oxunin mun með tímanum og notkun hverfa af yfirborði gripsins. Þetta gefur skartgripunum fornlegra útlit eftir því sem tíminn líður. Það er alltaf hægt að láta oxa gripinn á ný.

EFNI: 925 Sterling silfur