Furðuverur úr Trékyllisvík
Línan er innblásin af tveimur útskornum fjölum frá 17. öld sem áður prýddu Árneskirkju í Trékyllisvík á Ströndum og eru nú varðveittar í Þjóðminjasafni Íslands. Á fjölunum má sjá hafmeyjar, dreka og aðrar sjávarverur. Önnur þeirra sækir efnivið sinn í söguna af Flóres konungi, en hin sýnir menn berjast við drekakennt skrímsli.
Sagan á bak við línuna
Hugmyndir koma oft til manns á óvæntan hátt. Dag einn sá ég auglýsingu um sýningu í Þjóðminjasafninu um galdra og hjátrú, með myndum af tveimur gömlum útskornum fjölum. Eitthvað við hafmeyjuna kallaði á mig, svo ég fór að grafast fyrir um uppruna þeirra.
Þá kom í ljós að fjalirnar eru frá Ströndum, afskekktu svæði sem fjölskylda mín á djúpar rætur í og sem er, að mínu mati, miðja alheimsins. Og ekki nóg með það: kirkjan sem þær tilheyrðu er sú sama og afi minn og amma í föðurætt hvíla við. Samt hafði ég aldrei séð þær né heyrt um þær fyrr en á sýningunni í Reykjavík.
Svona tilviljun var ekki hægt að hunsa. Ég vissi að ég yrði að breyta þessum innblæstri í nýja línu.
EFNI: 14K hvítagull með 0,07kt Top Wesselton VS1 hvítum demanti, eða 0,07kt lituðum demanti