Creatures from the past-línan er innblásin af tveimur tréskurðarmyndum frá 17. öld sem voru í Ársneskirkju á Ströndum. Strandir er fallegur staður á Vestfjörðum.
Hvert verk er sérsmíðað og getur afgreiðslutími því verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, hefjum við smíði á skartgripnum og tíminn sem það tekur er breytilegur eftir verkinu sjálfu og fjölda pantana á verkstæðinu hverju sinni. Þú færð tölvupóst þegar pöntunin hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina fyrir ákveðinn tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.
Varðandi oxaða skartgripi, vinsamlegast hafðu í huga að oxunin dofnar með tímanum og við notkun af yfirborði skartgripsins. Þetta gefur skartgripnum gamaldags yfirbragð eftir því sem tíminn líður. Alltaf er hægt að láta oxa skartgripinn á ný.
EFNI: 14K gult gull og 14k gullhúðuð eða oxuð silfurkeðja. *Vinsamlegast hafðu samband við okkur á fridaskart@fridaskart.is ef þú vilt fá verðupplýsingar fyrir heila 14k gullkeðju.