Körfan mín

Loka

Kuðungar - 1 röð - Stærri skeljar - Silfur

15,500 ISK
Kuðungar vörulínan sækir innblástur í skeljarnar sem finnast í náttúru Íslands. Fríða á góðar bernskuminningar um það þegar fjölskylda hennar tók þátt í þjóðlegri dægradvöl, að safna skeljum og nota þær til að skreyta litla kassa, spegla og ramma. Þessir skreyttu munir, og nú þetta safn, minna á að heiðra náttúruna sem umlykur þig og mikilvægi þess að varðveita fegurð hennar.
Hver gripur er sérsmíðaður og því getur vinnslutíminn verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef gripurinn er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki hefjum við smíði á gripnum þínum og tíminn sem það tekur er breytilegur eftir gripnum sjálfum og fjölda pantana sem eru hjá verkstæðinu hverju sinni. Þú færð tilkynningu í tölvupósti þegar pöntunin þín hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina þína fyrir tiltekinn tíma skaltu senda okkur tölvupóst áður en þú leggur inn pöntun.

Varðandi oxuð stykki, vinsamlegast hafðu í huga að oxunin mun með tímanum og notkun dvína af yfirborði skartgripanna. Þetta gefur skartgripunum fornlegra útlit eftir því sem tíminn líður. Alltaf er hægt að láta oxa gripinn á ný.

EFNI: 925 Sterling silfur