Körfan mín

Loka

Celts & Kings-hringur – 8x6mm steinn – Gull

145,500 ISK

Celts & Kings-línan er innblásin af gömlum munum sem fundist hafa á Íslandi. Fríða byggði línuna á tveimur nælum, Norrænni tungunælu og Keltneskri þríarma nælu, sem fundust í gömlum heiðnum grafreitum og eru um 1.000 ára gamlar. Næsta viðbótin við línuna er Kamburinn, en hann var gripur sem veitti Fríðu innblástur í gegnum sýnir af íslenskum konum til forna að nota kamba sína til að eiga stund með sjálfum sér og kannski týna sér í eigin dagdraumum. Öll línan leikur sér með íslenskan arf og sögu með því að sameina þessa muni nútímaskartgripum.

Hver gripur er sérsmíðaður og því getur afgreiðslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, byrjum við að smíða gripinn og tíminn sem það tekur er breytilegur eftir gripnum sjálfum og fjölda pantana á verkstæðinu hverju sinni. Þú færð tilkynningu í tölvupósti þegar pöntunin hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina fyrir ákveðinn tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.

EFNI: 14K gult gull & 8x6mm blár tópas