Körfan mín

Loka

Celts & Kings hálsmen - Norsk skálspenna lítil - Gull

23,500 ISK

Celts & Kings-línan er innblásin af fornminjum sem fundist hafa á Íslandi. Fríða hannaði línuna út frá tveimur nælum, Norrænni tungunælu og Keltneskri þríarma nælu, sem fundust í gömlum heiðnum grafreitum og eru um 1.000 ára gamlar. Næsta viðbót við línuna er greiðan, en hún er gripur sem veitti Fríðu innblástur í gegnum sýnir af íslenskum konum fyrri tíða sem notuðu greiðurnar sínar til að eiga stund fyrir sjálfar sig og kannski týna sér í dagdraumum sínum. Öll línan leikur sér með íslenskan arf og sögu með því að sameina þessa gripi nútímaskartgripum.

Hvert stykki er sérsmíðað og því getur afgreiðslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Annars hefjum við smíði á gripnum og tíminn sem það tekur er breytilegur eftir gripnum sjálfum og fjölda pantana á verkstæðinu hverju sinni. Þú færð tilkynningu í tölvupósti þegar pöntunin hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina afhenta innan ákveðins tímaramma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.

Varðandi oxeraða gripi, vinsamlegast hafðu í huga að oxunin mun með tímanum og við notkun dofna af yfirborði gripsins. Þetta gefur skartgripunum fornlegra útlit með tímanum. Alltaf er hægt að láta oxera gripinn á ný.

EFNI: 14K gult gull & 14k gullhúðuð eða oxeruð silfurkeðja. *Vinsamlegast hafðu samband við okkur á fridaskart@fridaskart.is ef þú vilt fá verðupplýsingar fyrir gegnheila 14k gullkeðju.