Akantus vörulínan
Í verslun Fríðu hangir rúmfjöl sem amma hennar átti, skreytt útskornu Akantusmynstri. Þetta mjúka, lífræna skraut hafa íslenskir handverksmenn skorið í tré um aldir, og það prýðir marga af okkar fegurstu forngripum, allt frá rúmfjölum og baðstofuhurðum til handavinnustokka og kirkjumuna.
Í Akantuslínunni færir Fríða þessa handverkshefð yfir í silfur og 14 karata gull. Sveigðar línur, laufblöð og greinar sem vefjast saman gefa málminum lífrænt og glæsilegt yfirbragð.
Útkoman er brú á milli fortíðar og nútíðar: tímalausir skartgripir sem sóma sér jafnt við hversdagsfötin og sparifötin, en bera með sér handbragð kynslóðanna.
Hver skartgripur er sérsmíðaður og því getur afgreiðslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, byrjum við að smíða gripinn og tíminn sem það tekur er breytilegur eftir hlutnum sjálfum og fjölda pantana á verkstæðinu hverju sinni. Þú færð tölvupóst þegar pöntunin hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina senda fyrir tilsettan tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntuninni.
Varðandi oxaða gripi, vinsamlegast hafðu í huga að oxunin dofnar með tímanum og notkun þegar hún mást af yfirborði gripsins. Þetta gefur skartgripunum gamaldags yfirbragð með tímanum. Ávallt er hægt að láta oxa gripinn að nýju.
EFNI: 925 Sterling silfur