Körfan mín

Loka

Acanthus-hálsmen - Lítið Acanthus-hengiskraut - Gull

34,000 ISK

Acanthus-línan er innblásin af mynstrum í hefðbundnum íslenskum tréskurði. Fríða notaði tréskurðarverk sem er í eigu fjölskyldu hennar sem innblástur fyrir þessa línu.

Hvert verk er sérsmíðað og því getur afgreiðslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, hefjum við smíði á verkinu og tíminn sem það tekur er breytilegur eftir verkinu sjálfu og fjölda pantana á verkstæðinu hverju sinni. Þú færð tölvupóst þegar pöntunin hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina fyrir ákveðinn tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.

Varðandi oxaða skartgripi, vinsamlegast hafðu í huga að oxunin dofnar með tímanum við daglega notkun. Þetta gefur skartgripunum fornlegra útlit með tímanum. Það er alltaf hægt að láta oxa gripinn á ný.

EFNI: 14K gult gull á hengi og oxað silfur eða 14K gullhúðuð keðja. *Vinsamlegast hafðu samband við okkur á fridaskart@fridaskart.is ef þú vilt fá verðtilboð í keðju úr gegnheilu 14K gulli.