Körfan mín

Loka

Prjónahringur - Lítil lykkja - Hvítagull

128,000 ISK
Prjónavörulínan
Ullin hefur yljað Íslendingum í aldaraðir og prjónið er eitt af okkar dýrmætustu handverkum. Í Prjónalínunni fangar Fríða mjúka áferð og hlýju prjónsins og færir hana yfir í silfur og 14 karata gull.
Hver gripur er unninn af nákvæmni svo lykkjurnar raðast upp eins og í prjónaðri flík. Í armböndunum má sjá munstur með þremur, fjórum og allt upp í sjö umferðum, rétt eins og í peysunni sem amma prjónaði.
Mjúkt verður hart, hlýtt verður skínandi. Prjónalínan heiðrar íslenska alþýðulist og hefðir á nútímalegan hátt, með skartgripum sem eru þægilegir í daglegri notkun en bera með sér sterka tengingu við íslenska menningu.

Sérhver hlutur er sérsmíðaður og því getur afgreiðslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, hefjum við smíði á gripnum og tíminn sem það tekur er breytilegur eftir hlutnum sjálfum og fjölda pantana sem verkstæðið hefur hverju sinni. Þú færð tölvupóst þegar pöntunin hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina fyrir ákveðinn tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.

EFNI: 14k hvítagull