The Traveler er safn innblásið af gömlum kvennahlökkul frá 17. öld. Mynstrið er myndað úr grönnum jurtarteinum sem mynda hringlaga form sem skarast og fléttast saman.
Hvert stykki er sérsmíðað og því getur afgreiðslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, hefjum við smíði á gripnum og tíminn sem það tekur er breytilegur eftir sjálfum gripnum og fjölda pantana sem verkstæðið hefur hverju sinni. Þú færð tilkynningu í tölvupósti þegar pöntunin hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina fyrir ákveðinn tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.
Varðandi oxaða gripi, vinsamlegast hafðu í huga að oxunin mun með tímanum og notkun máast af yfirborði gripsins. Þetta gefur skartgripunum fornlegra yfirbragð með tímanum. Það er alltaf hægt að láta oxa gripinn á ný.
EFNI: 925 sterling silfur