Celts & Kings-línan er innblásin af gömlum gripum sem fundist hafa á Íslandi. Fríða byggði línuna á tveimur nælum, Norrænni tungunælu & Keltneskri þríarma nælu, sem fundust í gömlum heiðnum gröfum og eru um 1.000 ára gamlar. Næsta viðbót við línuna er Kamburinn, en hann er gripur sem veitti Fríðu innblástur í gegnum sýnir af íslenskum konum fyrri tíma að nota kamba sína til að eiga stund fyrir sjálfar sig og kannski hverfa inn í eigin dagdrauma. Öll línan leikur sér með íslenskan arf og sögu með því að tengja þessa gripi við nútímaskartgripi.
Hvert stykki er sérsmíðað og því getur afgreiðslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, hefjum við smíði á gripnum og tíminn sem það tekur er breytilegur eftir gripnum sjálfum og fjölda pantana sem verkstæðið hefur hverju sinni. Þú færð tilkynningu í tölvupósti þegar pöntunin hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina afhenta fyrir tiltekinn tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.
Lengd keðju: 44 cm með framlengingu í 48 cm
EFNI: 14K gult gull