Körfan mín

Loka

Hálsmen Celts & Kings – Keltnesk næla – Gull

30,500 ISK

Celts & Kings-línan er innblásin af gömlum gripum sem fundist hafa á Íslandi. Fríða byggði línuna á tveimur nælum, Norrænni tungunælu & Keltneskri þríarma nælu, sem fundust í gömlum heiðnum gröfum og eru um 1.000 ára gamlar. Næsta viðbót við línuna er Kamburinn, sem er gripur sem veitti Fríðu innblástur í gegnum sýnir af íslenskum konum fyrri alda sem notuðu kamba sína til að eiga stund fyrir sjálfar sig og, kannski, týna sér í eigin hugsanir. Öll línan leikur sér með íslenskan arf og sögu með því að tengja þessa gripi við nútímaskartgripi.

Hvert stykki er sérsmíðað og því getur afgreiðslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, hefjum við smíði á gripnum þínum & sá tími sem það tekur er breytilegur eftir gripnum sjálfum og fjölda pantana sem verkstæðið hefur í vinnslu hverju sinni. Þú færð tölvupóst þegar pöntunin hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina fyrir ákveðinn tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.

Varðandi oxuðu gripina, vinsamlegast hafðu í huga að oxunin mun með tíma og notkun dofna af yfirborði gripsins. Þetta gefur skartgripunum fornlegra yfirbragð með tímanum. Alltaf er hægt að láta oxa gripinn aftur.

EFNI: 14K gult gull & 14k gullhúðuð eða oxuð silfurkeðja. *Vinsamlegast hafðu samband við okkur á fridaskart@fridaskart.is ef þú vilt fá upplýsingar um verð á gegnheilli 14k gullkeðju.