Körfan mín

Loka

Celts & Kings eyrnalokkar - Opnir hringir - Gull

67,500 ISK
Default Title

The Celts & Kings-línan er innblásin af gömlum gripum sem fundist hafa á Íslandi. Fríða byggði línuna á tveimur nælum, Norrænni tungunælu & keltneskri þríarma nælu, sem fundust í gömlum heiðnum gröfum og eru um 1.000 ára gamlar. Næsta viðbót við línuna er greiðan, sem var gripur sem veitti Fríðu innblástur í gegnum sýnir af íslenskum konum fyrri tíða sem notuðu greiðurnar sínar til að gefa sér augnablik fyrir sjálfar sig og kannski týna sér í dagdraumum. Öll línan leikur sér með íslenskan arf og sögu með því að sameina þessa gripi nútímaskartgripum.

Hvert stykki er sérsmíðað og því getur afgreiðslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, hefjum við smíði á gripnum þínum & tíminn sem það tekur fer eftir gripnum sjálfum og fjölda pantana sem verkstæðið hefur hverju sinni. Þú færð tilkynningu í tölvupósti þegar pöntunin hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina fyrir ákveðinn tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntuninni.

EFNI: 14K gult gull