Prjónasafnið er innblásið af því mynstri sem myndast þegar lykkjur eru prjónaðar saman. Prjónaskapur er gríðarlega rótgróinn í íslenskri menningu og vildi Fríða heiðra þetta þjóðaráhugamál.
Sérhver hlutur er sérsmíðaður og því getur afgreiðslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, hefjum við smíði á hlutnum og tíminn sem það tekur er breytilegur eftir hlutnum sjálfum og fjölda pantana á verkstæðinu hverju sinni. Þú færð tölvupóst þegar pöntunin hefur verið send. Ef þig vantar pöntunina fyrir tiltekinn tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.
Varðandi oxaða skartgripi, vinsamlegast hafðu í huga að oxunin mun með tímanum og notkun máast af yfirborði skartgripanna. Þetta gefur skartgripunum fornlegra útlit eftir því sem tíminn líður. Alltaf er hægt að láta oxa skartgripinn aftur.
EFNI: 925 Sterling silfur