Körfan mín

Loka

Keltingar & Konungar Hringur - Greiða - Breiðari hringur - Silfur

22,000 ISK

The Celts & Kings-línan sækir innblástur í fornmuni sem fundist hafa á Íslandi. Fríða byggði línuna á tveimur nælum, Norrænni tungunælu og Keltneskri þríarma nælu, sem fundust í gömlum heiðnum grafreitum og eru um 1.000 ára gamlar. Næsta viðbót við línuna er greiðan, en hún er gripur sem veitti Fríðu innblástur í gegnum sýnir af íslenskum konum fyrri tíma nota greiðurnar sínar til að eiga stund með sjálfum sér og kannski týna sér í eigin dagdraumum. Öll línan leikur sér með íslenskan arf og sögu með því að sameina þessa gripi nútímaskartgripum.

Hvert stykki er sérsmíðað og því getur vinnslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Annars hefjum við smíði á þínu skarti og tíminn sem það tekur er breytilegur eftir gripnum sjálfum og fjölda pantana sem verkstæðið hefur í vinnslu hverju sinni. Þú færð tölvupóst þegar pöntunin þín hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina afhenta innan ákveðins tímaramma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.

Varðandi oxað skart, vinsamlegast hafðu í huga að oxunin dofnar með tímanum og notkun af yfirborði skartsins. Þetta gefur skartgripunum fornlegra útlit eftir því sem tíminn líður. Það er alltaf hægt að láta oxa skartið aftur.

EFNI: 925 Sterling silfur

MÁL: