Celts & Kings safnið er innblásið af gömlum gripum sem fundist hafa á Íslandi. Fríða byggði safnið á tveimur nælum, Norrænni tungunælu og Keltneskri þríarma nælu, sem fundust í gömlum heiðnum grafreitum og eru um 1.000 ára gamlar. Næsta viðbótin við safnið er Kamburinn, en það er gripur sem veitti Fríðu innblástur í gegnum sýnir af íslenskum konum fyrri tíma nota kamba sína til að eiga stund með sjálfum sér og kannski týnast í sínum eigin dagdraumum. Allt safnið leikur sér með íslenskan arf og sögu með því að sameina þessa gripi nútímaskartgripum.
Hver gripur er sérsmíðaður og því getur vinnslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur, ef varan er ekki til á lager. Ef varan er til á lager sendum við pöntunina næsta virka dag. Þú færð tölvupóst þegar pöntunin hefur verið send. Ef þig vantar pöntunina fyrir tiltekinn tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.
Varðandi oxaða skartgripi, vinsamlegast hafðu í huga að oxunin mun með tímanum og notkun hverfa af yfirborði gripsins. Þetta gefur skartgripunum fornlegra útlit eftir því sem tíminn líður. Alltaf er hægt að láta oxa gripinn á ný.
EFNI: 925 Sterling silfur