Celts & Kings safnið sækir innblástur í fornmuni sem fundist hafa á Íslandi. Fríða byggði safnið á tveimur nælum, norrænni tungunælu og keltneskri þríarma nælu, sem fundust í gömlum heiðnum greftrunarstöðum og eru um 1.000 ára gamlar. Næsta viðbót við safnið erGreiðan, sem var forngripur sem veitti Fríðu innblástur gegnum sýnir af íslenskum konum fyrri tíða nota greiðurnar sínar til að eiga stund fyrir sjálfar sig og kannski týna sér í dagdraumum. Allt safnið leikur sér með íslenskan arf og sögu með því að sameina þessa fornmuni nútímaskartgripum.
Hvert stykki er sérsmíðað og því getur vinnslutími verið frá2 dögum upp í 3 vikur, ef varan er ekki til á lager. Ef varan er til á lager sendum við pöntunina næsta virka dag. Þú færð tölvupóst þegar pöntunin hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina fyrir tiltekinn tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.
Varðandi oxaða skartgripi, vinsamlegast hafðu í huga að oxunin dofnar með tímanum og notkun af yfirborði skartgripanna. Þetta gefur skartgripunum fornlegra útlit með tímanum. Ávallt er hægt að láta oxa gripinn á ný.
EFNI: 925 Sterling silfur