The Celts & Kings-línan er innblásin af gömlum munum sem fundist hafa á Íslandi. Fríða byggði línuna á tveimur nælum, Norrænni tungunælu & Keltneskri þríarma nælu, sem fundust í gömlum heiðnum greftrunarstöðum og eru um 1.000 ára gamlar. Næsta viðbót við línuna er greiðan, en hún var gripur sem veitti Fríðu innblástur í gegnum sýnir af íslenskum konum fyrri tíða sem notuðu greiðurnar sínar til að gefa sér augnablik fyrir sjálfsumönnun og, kannski, til að hverfa inn í eigin hugsanir. Öll línan leikur sér með íslenskan arf og sögu með því að tengja þessa gripi við nútímaskartgripi.
Hvert stykki er sérsmíðað og því getur afgreiðslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, munum við hefja smíði á gripnum þínum & sá tími sem það tekur er breytilegur eftir gripnum sjálfum og fjölda pantana sem verkstæðið hefur hverju sinni. Þú færð tölvupóst þegar pöntunin þín hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina afhenta innan ákveðins tímaramma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntuninni.
EFNI: 14K gult gull