Körfan mín

Loka

Celts & Kings hálsmen - norsk skrautnál - gull

34,000 ISK

The Celts & Kings-línan sækir innblástur í fornmuni sem fundist hafa á Íslandi. Fríða byggði línuna á tveimur nælum, Norrænni tungunælu og Keltneskri þríarma nælu, sem fundust í heiðnum gröfum og eru um 1.000 ára gamlar. Næsta viðbót við línuna er Kamburinn, en hann er gripur sem veitti Fríðu innblástur í gegnum sýnir af íslenskum konum fyrri tíma sem notuðu kamba sína til að eiga stund fyrir sjálfar sig og kannski týna sér í eigin dagdraumum. Öll línan leikur sér með íslenskan arf og sögu með því að tengja þessa gripi við nútímaskartgripi.

Hvert stykki er sérsmíðað og því getur afgreiðslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, hefjum við smíði á gripnum þínum og tíminn sem það tekur er breytilegur eftir gripnum sjálfum og fjölda pantana sem verkstæðið hefur hverju sinni. Þú færð tilkynningu í tölvupósti þegar pöntunin hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina fyrir ákveðinn tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.

Varðandi oxaða gripi, vinsamlegast hafðu í huga að oxunin mun með tímanum og notkun hverfa af yfirborði gripsins. Þetta gefur skartgripunum fornlegra útlit eftir því sem tíminn líður. Það er alltaf hægt að láta oxa gripinn aftur.

EFNI: 14K gult gull og 14k gullhúðuð eða oxuð silfurkeðja. *Vinsamlegast hafðu samband við okkur á fridaskart@fridaskart.is ef þú vilt fá verðtilboð í gegnheila 14k gullkeðju.