The Celts & Kings-línan er innblásin af fornminjum sem fundist hafa á Íslandi. Fríða hannaði línuna út frá tveimur nælum, Norrænni tungunælu og Keltneskri þríarma nælu, sem fundust í gömlum heiðnum grafreitum og eru um 1.000 ára gamlar. Næsta viðbótin við línuna er greiðan, sem var gripur sem veitti Fríðu innblástur í gegnum sýnir af íslenskum konum til forna sem notuðu greiðurnar sínar til að eiga stund fyrir sjálfar sig og kannski týna sér í eigin draumum. Öll línan leikur sér með íslenskan arf og sögu með því að sameina þessa gripi nútímaskartgripum.
Hvert stykki er sérsmíðað og því getur afgreiðslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, hefjum við smíði á gripnum og tíminn sem það tekur er breytilegur eftir gripnum sjálfum og fjölda pantana sem verkstæðið hefur hverju sinni. Þú færð tilkynningu í tölvupósti þegar pöntunin þín hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina fyrir ákveðinn tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntuninni.
Varðandi oxaða gripi, vinsamlegast hafðu í huga að oxunin mun með tímanum og notkun dofna af yfirborði gripsins. Þetta gefur skartgripunum fornlegra útlit eftir því sem tíminn líður. Það er alltaf hægt að láta oxa gripinn aftur.
EFNI: 14K gult gull og 14k gullhúðuð eða oxuð silfurkeðja. *Vinsamlegast hafðu samband við okkur á fridaskart@fridaskart.is ef þú vilt fá verðupplýsingar fyrir gegnheila 14k gullkeðju.