Celts & Kings safnið sækir innblástur í forna muni sem fundist hafa á Íslandi. Fríða byggði safnið á tveimur nælum, Norrænni tungunælu & Keltneskri þríarma nælu, sem fundust í gömlum heiðnum grafhýsum og eru um 1.000 ára gamlar. Næsta viðbót við safnið er Kamburinn, en hann er gripur sem veitti Fríðu innblástur í gegnum sýnir af íslenskum konum til forna sem notuðu kamba sína til að eiga stund fyrir sjálfar sig og hugsanlega týna sér í eigin dagdraumum. Safnið allt leikur sér með íslenskan arf og sögu með því að sameina þessa fornu muni nútímaskartgripum.
Sérhver gripur er sérsmíðaður og því getur afgreiðslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, hefjum við smíði á gripnum og tíminn sem það tekur er breytilegur eftir gripnum sjálfum og fjölda pantana á verkstæðinu hverju sinni. Þú færð tölvupóst þegar pöntunin hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina fyrir ákveðinn tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.
Varðandi oxaða gripi, vinsamlegast hafðu í huga að oxunin mun með tíma og notkun dvína af yfirborði gripsins. Þetta gefur skartgripunum forlegra yfirbragð með tímanum. Það er alltaf hægt að fá gripinn oxaðan á ný.
EFNI: 14K gult gull & 14k gullhúðuð eða oxuð silfurkeðja. *Vinsamlegast hafðu samband við okkur á fridaskart@fridaskart.is ef þú vilt fá verðupplýsingar fyrir gegnheila 14k gulllkeðju.