Celts & Kings-línan er innblásin af gömlum gripum sem fundist hafa á Íslandi. Fríða byggði línuna á tveimur nælum, Norrænni tungunælu og Keltneskri þríarma nælu, sem fundust í gömlum heiðnum kumlum og eru um 1.000 ára gamlar. Næsta viðbót við línuna er greiðan, sem var gripur sem veitti Fríðu innblástur í gegnum sýnir af íslenskum konum fyrri tíma nota greiðurnar sínar til að gefa sér smá stund fyrir sjálfar sig og kannski týna sér í dagdraumum. Öll línan leikur sér með íslenskan arf og sögu með því að tengja þessa gripi við nútímaskartgripi.
Hvert stykki er sérsmíðað og því getur afgreiðslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, byrjum við að smíða gripinn og tíminn sem það tekur fer eftir gripnum sjálfum og fjölda pantana á verkstæðinu hverju sinni. Þú færð tilkynningu í tölvupósti þegar pöntunin hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina afhenta innan ákveðins tímaramma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.
EFNI: 14K gult gull