Creatures from the past-línan er innblásin af tveimur tréskurðarmyndum frá 17. öld sem voru í Ársneskirkju á Ströndum. Strandir er fallegt lítið svæði á Vestfjörðum.
Hver hlutur er sérsmíðaður og því getur afgreiðslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, hefjum við smíði á hlutnum og tíminn sem það tekur er breytilegur eftir hlutnum sjálfum og fjölda pantana sem verkstæðið hefur hverju sinni. Þú færð tölvupóst þegar pöntunin hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina fyrir ákveðinn tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.
Varðandi oxaða hluti, vinsamlegast hafðu í huga að oxunin dofnar með tímanum og notkun af yfirborði skartgripanna. Þetta gefur skartgripunum fornlegra útlit með tímanum. Það er alltaf hægt að láta oxa hlutinn aftur.
EFNI: 925 Sterling silfur