KUÐUNGAR
Kuðungalínan
Kuðungalínan á rætur sínar í íslenskri fjöru og í æskuminningum Fríðu. Sem barn safnaði hún skeljum og kuðungum í fjörunni með fjölskyldu sinni, og saman notuðu þau fundinn til að skreyta litla muni: spegla, myndaramma og öskjur. Þessi gamla alþýðuhefð lifir nú áfram í silfri og gulli.
Formin eru sótt beint í skeljarnar og kuðungana sem finnast við strendur Íslands. Margar smáar skeljar raðast saman í eina heild, allt upp í níu raðir í hringjunum, rétt eins og á skreyttu munum fyrri tíma.
Með Kuðungalínunni minnir Fríða okkur á að staldra við, taka eftir fegurðinni í náttúrunni í kringum okkur og bera virðingu fyrir henni.
Kuðunga-skartgripirnir fást úr silfri og 14 karata gulli.