Körfan mín

Loka

Skeljaeyrnalokkar - Stök skel sem hangir - Gull

58,500 ISK

Seashell-línan er innblásin af skeljum sem finnast í íslenskri náttúru. Fríða á góðar bernskuminningar þar sem fjölskyldan tók þátt í vinsælli iðju að safna skeljum og nota þær til að skreyta litla kassa, spegla og ramma. Þessir skreyttu hlutir, og nú þessi lína, minna okkur á að virða náttúruna sem umlykur okkur og mikilvægi þess að varðveita fegurð hennar.

Hvert stykki er sérsmíðað og því getur afgreiðslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, hefjum við smíði á skartgripnum og tíminn sem það tekur er breytilegur eftir hlutnum sjálfum og fjölda pantana á verkstæðinu hverju sinni. Þú færð tilkynningu í tölvupósti þegar pöntunin hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina fyrir tiltekinn tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.

Varðandi oxaða skartgripi, vinsamlegast hafðu í huga að oxunin mun með tímanum og notkun hverfa af yfirborði skartgripsins. Þetta gefur skartgripnum fornlegt útlit eftir því sem tíminn líður. Alltaf er hægt að láta oxa skartgripinn aftur.

EFNI: 14K gult gull & oxað silfur eða eyrnalokkalykkja úr gegnheilu 14k gulu gulli