Celts & Kings-línan er innblásin af gömlum gripum sem fundist hafa á Íslandi. Fríða byggði línuna á tveimur nælum, Norrænni tungunælu & Keltneskri þríarma nælu, sem fundust í gömlum heiðnum gröfum og eru um 1.000 ára gamlar. Næsta viðbót við línuna er greiðan, sem var gripur sem veitti Fríðu innblástur í gegnum sýnir af íslenskum konum fyrri tíða sem notuðu greiðurnar sínar til að eiga stund fyrir sjálfar sig og kannski týna sér í eigin draumum. Öll línan leikur sér með íslenskan menningararf og sögu með því að sameina þessa gripi nútímaskartgripum.
Hvert stykki er sérsmíðað og því getur afgreiðslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, hefjum við smíði á þínu skarti & tíminn sem það tekur er breytilegur eftir stykkinu sjálfu og fjölda pantana sem verkstæðið hefur hverju sinni. Þú færð tölvupóst þegar pöntunin þín hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina fyrir ákveðinn tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.
EFNI: 14K gult gull