Körfan mín

Loka

Skeljaarmband - Steinn - Silfur

28,000 ISK

Seashell-línan er innblásin af skeljum sem finnast í íslenskri náttúru. Fríða á ljúfar bernskuminningar þar sem fjölskylda hennar tók þátt í þjóðlegri hefð við að safna skeljum og nota þær til að skreyta litla kassa, spegla og ramma. Þessir skreyttu hlutir, og nú þessi lína, minna á mikilvægi þess að virða náttúruna sem umlykur okkur og varðveita fegurð hennar.

Hvert stykki er sérsmíðað og því getur afgreiðslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, byrjum við að smíða gripinn og tíminn sem það tekur er breytilegur eftir hlutnum sjálfum og fjölda pantana á verkstæðinu hverju sinni. Þú færð tilkynningu í tölvupósti þegar pöntunin hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina fyrir ákveðinn tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.

Varðandi oxuð skartgripastykki: Vinsamlegast hafðu í huga að oxunin mun með tímanum og við notkun dofna af yfirborði gripsins. Þetta gefur skartgripunum fornlegra útlit með tíð og tíma. Alltaf er hægt að láta oxa gripinn á ný.

EFNI: 925 Sterling silfur