The Celts & Kings-línan er innblásin af fornminjum sem fundist hafa á Íslandi. Fríða byggði línuna á tveimur nælum, Norrænni tungunælu og Keltneskri þríarma nælu, sem fundust í gömlum heiðnum grafhýsum og eru um 1.000 ára gamlar. Næsta viðbót við línuna er greiðan, sem var gripur sem veitti Fríðu innblástur í gegnum sýnir af íslenskum konum fyrri alda sem notuðu greiðurnar sínar til að eiga stund fyrir sjálfar sig og kannski týna sér í dagdraumum. Öll línan leikur sér með íslenskan arf og sögu með því að sameina þessa muni nútímaskartgripum.
Hvert stykki er sérsmíðað og því getur afgreiðslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Annars byrjum við að smíða gripinn og sá tími sem það tekur er breytilegur eftir gripnum sjálfum og fjölda pantana sem verkstæðið hefur hverju sinni. Þú færð tölvupóst þegar pöntunin hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina fyrir ákveðinn tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntuninni.
Varðandi oxaða skartgripi, vinsamlegast hafðu í huga að oxunin dofnar með tímanum og notkun af yfirborði gripsins. Þetta gefur skartgripunum fornlegra útlit með tímanum. Ávallt er hægt að láta oxa gripinn á ný.
EFNI: 925 Sterling silfur