The Celts & Kings-línan sækir innblástur í fornmuni sem fundist hafa á Íslandi. Fríða byggði línuna á tveimur nælum, Norrænni tungunælu og Keltneskri þríarma nælu, sem fundust í fornum heiðnum gröfum og eru um 1.000 ára gamlar. Næsta viðbót við línuna er Greiðan, sem er forngripur sem veitti Fríðu innblástur í gegnum sýnir af íslenskum konum fyrri tíða sem notuðu greiðurnar sínar til að gefa sér stund fyrir sjálfar sig og kannski týna sér í eigin hugleiðingum. Öll línan leikur sér með íslenskan arf og sögu með því að sameina þessa fornmuni nútíma skartgripahönnun.
Hvert stykki er sérsmíðað og því getur afgreiðslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, hefjum við smíði á gripnum og tíminn sem það tekur er breytilegur eftir gripnum sjálfum og fjölda pantana á verkstæðinu hverju sinni. Þú færð tölvupóst þegar pöntunin hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina fyrir tiltekna dagsetningu, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntuninni.
Varðandi oxaða gripi, vinsamlegast hafðu í huga að oxunin dofnar með tímanum og við notkun af yfirborði gripsins. Þetta gefur skartgripunum forlegra útlit eftir því sem tíminn líður. Það er alltaf hægt að fá gripinn oxaðan að nýju.
EFNI: 925 Sterling silfur