Creatures from the past-línan er innblásin af tveimur tréskurðarmyndum frá 17. öld sem voru í Árneskirkju á Ströndum. Strandir er fallegt svæði á Vestfjörðum á Íslandi.
Hver hlutur er sérsmíðaður og því getur afgreiðslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Annars hefjum við smíði á hlutnum og tíminn sem það tekur er breytilegur eftir hlutnum sjálfum og fjölda pantana á verkstæðinu hverju sinni. Þú færð tölvupóst þegar pöntunin þín hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina fyrir ákveðinn tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.
Varðandi oxaða skartgripi, vinsamlegast hafðu í huga að oxunin dofnar með tímanum við notkun á yfirborði gripsins. Þetta gefur skartgripunum fornlegra útlit með tímanum. Það er alltaf hægt að láta oxa gripinn aftur.
EFNI: 925 Sterling silfur