The Traveler er safn innblásið af gömlum hliðarsöðli frá 17. öld. Mynstrið er myndað úr grönnum plöntuungum sem mynda hringlaga form sem skarast og fléttast saman.
Hvert stykki er sérsmíðað og því getur afgreiðslutími verið allt frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, munum við hefjast handa við smíðina og tíminn sem það tekur fer eftir viðkomandi hlut og fjölda pantana á verkstæðinu hverju sinni. Þú færð tilkynningu í tölvupósti þegar pöntunin hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina fyrir ákveðinn tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntuninni.
Varðandi oxaða hluti, vinsamlegast hafðu í huga að oxunin mun með tímanum og notkun dofna af yfirborði skartgripanna. Þetta gefur skartgripunum fornlegra yfirbragð eftir því sem líður á. Það er alltaf hægt að láta oxa hlutinn á ný.
EFNI: 925 Sterling silfur og brons