Creatures from the past-línan er innblásin af tveimur tréskurðum frá 17. öld sem voru í Ársneskirkju á Ströndum. Strandir eru fallegt og lítið svæði á Vestfjörðum.
Hvert verk er sérsmíðað og því getur afgreiðslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, hefjum við smíði á verkinu þínu og tíminn sem það tekur er breytilegur eftir verkinu sjálfu og fjölda pantana á verkstæðinu hverju sinni. Þú færð tölvupóst þegar pöntunin þín hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina fyrir tiltekinn tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.
Varðandi oxaða skartgripi, vinsamlegast hafðu í huga að oxunin dofnar með tímanum og notkun af yfirborði skartgripanna. Þetta gefur skartgripunum fornlegra útlit með tímanum. Það er alltaf hægt að láta oxa skartgripinn aftur.
EFNI: 925 Sterling silfur