Creatures from the past-línan er innblásin af tveimur tréskurðarmyndum frá 17. öld sem voru í Ársneskirkju á Ströndum. Strandir er fallegt lítið svæði á Vestfjörðum.
Hvert verk er sérsmíðað og afgreiðslutími getur því verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, hefjum við smíði á verkinu og tíminn sem það tekur er breytilegur eftir verkinu sjálfu og fjölda pantana á verkstæðinu hverju sinni. Þú færð tölvupóst þegar pöntunin hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina fyrir ákveðinn tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.
Varðandi oxaða muni, vinsamlegast hafðu í huga að oxunin mun með tímanum og við notkun dofna af yfirborði skartgripanna. Þetta gefur skartgripunum fornlegra útlit eftir því sem tíminn líður. Alltaf er hægt að láta oxa skartgripinn á ný.
EFNI: 925 Sterling silfur