Körfan mín

Loka

Prjónaðir eyrnalokkar – stórt lykkjumynstur – pinnar – silfur

9,500 ISK

Prjónasafnið er innblásið af því mynstri sem myndast þegar lykkjur eru prjónaðar saman. Prjónaskapur er afar rótgróinn í íslenskri menningu og vildi Fríða heiðra þetta þjóðaráhugamál.

Hvert verk er sérsmíðað og því getur afgreiðslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, hefjum við smíði á gripnum þínum og tíminn sem það tekur er breytilegur eftir gripnum sjálfum og fjölda pantana á verkstæðinu hverju sinni. Þú færð tölvupóst þegar pöntunin hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina fyrir tiltekinn tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.

Varðandi oxaða gripi, vinsamlegast hafðu í huga að oxunin mun með tíma og notkun dofna af yfirborði gripsins. Þetta gefur skartgripunum fornlegra útlit með tímanum. Ávallt er hægt að láta oxa gripinn á ný.

EFNI: 925 Sterling silfur