Creatures from the past-línan er innblásin af tveimur tréskurðarmyndum frá 17. öld sem voru í Ársneskirkju á Ströndum. Strandir eru fallegt og lítið svæði á Vestfjörðum.
Hver gripur er sérsmíðaður og getur vinnslutími því verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, hefjum við smíði á gripnum og tíminn sem það tekur er breytilegur eftir hlutnum sjálfum og fjölda pantana á verkstæðinu hverju sinni. Þú færð tölvupóst þegar pöntunin hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina fyrir tiltekinn tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.
Varðandi oxaða gripi, vinsamlegast hafðu í huga að oxunin dofnar með tímanum og við notkun af yfirborði gripsins. Þetta gefur skartgripunum fornlegra útlit með tímanum. Það er alltaf hægt að láta oxa gripinn á ný.
EFNI: 925 Sterling silfur