Körfan mín

Loka

Skeljaeyrnalokkar - 1 röð - Litlir opnir hringir - Gull

121,000 ISK
Default Title

Seashell-safnið er innblásið af skeljum sem finnast í íslenskri náttúru. Fríða á góðar æskuminningar þar sem fjölskylda hennar tók þátt í þeirri þjóðlegu iðju að safna skeljum og nota þær til að skreyta litla kassa, spegla og ramma. Þessir skreyttu hlutir, og nú þetta safn, minna okkur á að virða náttúruna sem umlykur okkur og mikilvægi þess að varðveita fegurð hennar.

Hvert verk er sérsmíðað og því getur afgreiðslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, hefjum við smíði á skartgripnum og tíminn sem það tekur fer eftir viðkomandi hlut og fjölda pantana á verkstæðinu hverju sinni. Þú færð tilkynningu í tölvupósti þegar pöntunin hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina fyrir tiltekinn tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntuninni.

EFNI: 14K gult gull