Körfan mín

Loka

Celts & Kings hringur - 8x4mm augasteinn - gull

113,500 ISK

Celts & Kings-línan er innblásin af gömlum munum sem fundist hafa á Íslandi. Fríða byggði línuna á tveimur nælum, Norrænni tungunælu og Keltneskri þríarma nælu, sem fundust í gömlum heiðnum gröfum og eru um 1.000 ára gamlar. Næsta viðbót við línuna er Kamburinn, sem var gripur sem veitti Fríðu innblástur í gegnum sýnir af íslenskum konum fyrri tíma nota kamba sína til að eiga stund með sjálfum sér og kannski týna sér í eigin dagdraumum. Öll línan leikur sér með íslenskan arf og sögu með því að sameina þessa muni nútímaskartgripum.

Hvert verk er sérsmíðað og vinnslutími getur því verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, hefjum við smíði á gripnum og tíminn sem það tekur er breytilegur eftir gripnum sjálfum og fjölda pantana á verkstæðinu hverju sinni. Þú færð tölvupóst þegar pöntunin hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina afhenta innan ákveðins tímaramma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.

EFNI: 14K gult gull og 8x4mm granatsteinn