Creatures from the past-línan er innblásin af tveimur tréskurðarmyndum frá 17. öld sem voru í Ársneskirkju á Ströndum. Strandir er fallegt lítið byggðarlag á Vestfjörðum.
Hvert verk er sérsmíðað og því getur vinnslutími verið allt frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, hefjum við smíði á gripnum og tíminn sem það tekur er breytilegur eftir hverju verki og fjölda pantana á verkstæðinu hverju sinni. Þú færð tölvupóst þegar pöntunin þín hefur verið send. Ef þig vantar pöntunina fyrir tiltekinn tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.
Varðandi oxaða gripi, vinsamlegast hafðu í huga að oxunin dofnar með tímanum við notkun á yfirborði gripsins. Þetta gefur skartgripunum fornlegra útlit eftir því sem tíminn líður. Það er alltaf hægt að láta oxa gripinn á ný.
EFNI: 925 Sterling silfur