Körfan mín

Loka

Keltar og Kóngar hringur - Lítil keltnesk tungunæla - Silfur

13,500 ISK

Keltar og Kóngar vörulínan sækir innblástur í fornmuni sem fundist hafa á Íslandi. Fríða byggði línuna á tveimur nælum, Norrænni tungunælu og Keltneskri þríarma nælu, sem fundust í heiðnum gröfum og eru um 1.000 ára gamlar. Næsta viðbót við línuna er síðan Kamburinn, sem var gripur sem veitti Fríðu innblástur í gegnum sýnir af íslenskum konum fyrri tíma nota kamba sína til að eiga stund fyrir sjálfar sig og kannski hverfa inn í eigin hugsanir.

Með þessari vörulínu leikur Fríða sér með íslenskan arf og sögu með því að sameina þessa fornmuni nútíma skartgripum.

Hver gripur er sérsmíðaður, og því getur afgreiðslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef gripurinn er til á lager í þinni stærð, sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, hefjum við smíði á gripnum og tíminn sem það tekur fer eftir gripnum sjálfum og fjölda pantana sem verkstæðið hefur hverju sinni. Þú færð tilkynningu í tölvupósti þegar pöntunin hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina fyrir ákveðinn tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.

Varðandi oxuð stykki, vinsamlegast hafðu í huga að oxunin mun með tímanum og við notkun dofna af yfirborði gripsins. Þetta gefur skartgripunum fornlegra útlit eftir því sem tíminn líður. Alltaf er hægt að láta oxa gripinn á ný.

EFNI: 925 Sterling silfur